Kænur eru litlir seglbátar sem ætlað er að sigla nálægt landi.
Kænur eru einfaldar í uppsetningu, auðvelt að setja á flot og taka í land. Það þarf engin sérstök réttindi til þess að nota kænur, en það er ekki vinsælt að nota kænur í stærri höfnum eða nálægt annasömum siglingaleiðum.
Það er algengur misskilningur að kænur séu "barnabátar". Í raun og veru eru nær óteljandi útgáfur af kænum sem notaðar eru í öllum mögulegum tilgangi, allt frá yndissiglingum til Ólympíukeppna. Tilgangur kænunnar er að virkja vindinn til þess að þjóta áfram milli öldutoppanna.
Í Ými notum við kænur mikið til þess að kenna siglingar, stunda útivist og taka þátt í keppnum. Í Ými byggjum við þessa starfsemi út frá fjórum verkefnum sem lýst er að neðan
Við notum kænur félagsins í allnokkrum samstarfsverkefnum sem auðga starf annarra félaga. Þar ber hæst:
Barnanámskeiðið "Leikur við sjóinn", sem hefur verið stundað í áraraðir í Kópavogi sem "Kópaness" og í Reykjavík sem "Siglunes". Slík leikjanámskeið eru oft lykil starfsemi í siglingaklúbbum þar sem börn fá fyrstu kynni af þeirri gleði sem fylgir því að leika sér á bátum.
Siglingar og sjórinn sem valfög í gagnfræðaskólum
Starfsemi sjóskátaflokks (í samvinnu við Skátafélagið Kópa)
Við kennum byrjendum að sigla með fyrsta flokks aðferð sem þróuð hefur verið af World Sailing. Með því að kenna rétt handbrögð og fótaburð setjum við grunninn að öryggi og meiðslalausum siglingum.
Við erum einnig með framhaldsnámskeið í siglingum sem byggja á að yfta þekkingunni upp um eitt skref í einu með því að nota leikjamiðaðar aðferðir þar til nemandinn nær færni og getur byrjað að sigla sjálfstætt til eigin skemmtunar.
Allir seglbátar sigla á sömu forsendum; vindurinn togar þá áfram þegar seglin eru rétt sett. Með því að skilja hvernig og af hverju kænan siglir fær maður á sama tíma skilning á hvernig allir selbátar sigla.
Æfingahópurinn okkar er félagsskapur sem hittist reglulega og í þeim tilgangi að sigla ef veður leyfir, en læra annars eitthvað um sjó og umhverfi ef veðurskilyrði eru ekki góð. Við leggjum mikið upp úr því að hafa þetta góðan félagsskap frekar en að búa til ofurkeppendur, þó það sé oft stutt í keppnisskapið.
Þessi hópur er alls ekki afmarkaður við börn eða unglinga, hér hvetjum við fullorðna að koma með okkur í hópinn - það er nóg pláss á sjónum.
Siglingakeppnir gera kænusiglingar af íþróttagrein. Með því að keppa lærir þú af eigin mistökum og af mistökum annarra og öðlastdýpri skilning á keppnisbátum.
Við styðjum keppnishóp í Laser (ILCA) siglingum og á Optimist bátum félagsins og eru þessir bátar því ekki notaðir í námskeiðum hjá okkur. Einnig er hægt að nota aðra báta félagsins í keppnum, en þá þarf að nota þann búnað sem notaður er í kennslu.
Keppnishópur Ýmis tekur þátt í siglingakeppnum á vegum Siglingasambands Íslands, og heldur innanfélagskeppnir fyrir byrjendur.
Siglingakeppnir snúast ekki bara um að sigla hratt á bát. Umhverfis siglingakeppnir er hópur áhugamanna sem hafa gaman af félagsskapnum í félaginu, spennunni sem myndast kringum keppnir og ríkt menningarsamfélag sem tengir saman siglingaklúbba um allan heim.
Til þess að siglingakeppnir séu skemmtilegar þurfum við sjálfboðaliða sem sjá um dómgæslu, keppnisstjórn, aðstoð við keppendur og allt hitt sem gerist í landi. Hér eru mikil tækifæri til þess að koma til liðs við okkur og á sama tíma að fá innsýn inn í alþjóðlega atvinnugrein.