Strandróður er íþrótt í mikilli sókn sem færir spennuna úr hefðbundnum keppnisróðri út á strandsvæði. Uppruna þessa forms keppnisróðurs má rekja til Frakklands og Ítalíu, og í fyrsta sinn verður keppt í honum á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028.
Keppt er á bátum með einn, tvo eða fjóra ræðurum í kvenna-, karla- eða blönduðum flokkum.
En strandróður er meira en bara keppnisíþrótt. Bátarnir eru hannaðir til að vera stöðugir og öruggir, sem gerir þessa íþrótt að frábærri afþreyingu fyrir fólk á öllum aldri og getustigum. Með aðild að róðrarklúbbi fá bæði keppendur og áhugafólk aðgang að nauðsynlegri aðstöðu og skipulagi, sem skapar félagslegt, skemmtilegt og öruggt umhverfi.
Lara de Stefano er fyrrverandi landsliðsræðari frá Ítalíu. Hún býr í Reykjavík og er einbeitt í að koma Íslandi á Ólympíuleikana 2032 – og enn lengra – í róðri.
Aðstaða Ýmis við Naustavör 14 á Kársnesi hefur allt sem þarf til að sjósetja báta og tryggja öruggar æfingar og þjálfun. Þar er einnig rými fyrir æfingar á landi og félagsstarf.
Eftir því sem siglingastarf klúbbsins færist yfir í Kópavogshöfn á næstu árum, mun húsið við Naustavör þróast í miðstöð róðurs á höfuðborgarsvæðinu.
Núverandi flotinn okkar samanstendur af Filippi tvímenningum með Concept2 hatchet-árum, en stefnt er að því að byggja upp fullbúinn flota af einmennings-, tvímennings- og fjórmenningabátum, og að lokum bæta við hefðbundnum kappróðrarbátum.
Ýmir mun bjóða upp á námskeið og skipulagða þjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri til að upplifa alla möguleika strandróðurs.
Strandsprettir
Þrekróður
Leiðangar
Afþreying
Fylgist með fyrir nánari upplýsingar!