Námskeið fyrir börn og unglinga
Við hjá Siglingafélaginu Ými ætlum að bjóða upp á framhaldsnámskeið í siglingum í júlí. Námskeiðið mun eingöngu vera selgbátanámskeið þar sem grunnkennsla á seglbáta verður rifjuð upp og einnig verður farið í æfingar úti á sjó.
Námskeiðið hefst mánudaginn 4. júlí og mun standa í 2 vikur.
Æfingar verða mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 – 18:00.
Kennt verður á eftirfarandi bátategundir: Optimist, Topper Topaz, Lazer 4,7 og Laser Radial.
Námskeiðið verður haldið í félagsheimili Ýmis við Naustavör (neðan við Vesturvör).
Kennarar á námskeiðinu verða Birgir Ari Hilmarsson formaður Ýmis og Ólafur Víðir Ólafsson yfirþjálfari hjá Ými.
Námskeiðsgjald verður 5.000 kr.
Námskeiðsgjaldið getur svo gengið upp í ársgjaldið í æfingahóp sem er 15.000 kr. ef viðkomandi vill koma og æfa með okkur áfram eftir námskeiðið.
Skráning er í síma 869 1817 eða This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.





